12.6.2020

Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 15. júní og fimmtudaginn 18. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá við upphaf þingfundar mánudaginn 15. júní, kl. 15:00 og fimmtudaginn 18. júní, kl. 10:30. Þann 15. júní verða til svara forsætisráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heilbrigðisráðherra, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, félags- og barnamálaráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra og dómsmálaráðherra. Þann 18. júni verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.